Fara í efni
Umsóknarfrestur: Íþróttasjóður

Markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og eflingu íþróttastarfs fyrir börn og unglinga, efla þekkingu þjálfara og leiðbeinenda, auka gildi íþróttastarfs í forvörnum og auka veg og virðingu íþróttastarfs í samfélaginu. Umsóknarfrestur er til kl. 15:00, mánudaginn 2. október 2023.

Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna:

  • Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
  • Útbreiðslu- og fræðsluverkefna, sérstök áhersla verðurlögð á verkefni sem stuðla að inngildingu í íþróttum
  • Íþróttarannsókna
  • Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga

Vakin er athygli á því að sami umsækjandi getur aðeins sent inn eina umsókn í hverjum umsóknarflokki.

Lágmarksstyrkur til verkefna er 250 þúsund.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi fyrir kl. 15:00, mánudaginn 2. október 2023.

Umsóknum skal skilað rafrænt. Aðgangur að umsóknarkerfi, eyðublöðum fyrir skýrslur, matskvarða, ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn o.fl., er að finna á síðu sjóðsins

Síða Íþróttasjóðs

Umsóknarfrestur: Íþróttasjóður