Fara í efni
Ný tækifæri - Opnunarhátíð Evrópusamstarfs

Ný tækifæri í Evrópusamstarfi, sem gilda árin 2021-2027 verða kynnt í beinni útsendingu frá Borgarleikhúsinu 15. apríl kl. 14:00-16:00 þegar nýrri kynslóð samstarfsáætlana ESB verður hleypt af stokkunum.

Hér er hægt að horfa á streymi 


Kynnið ykkur tækifæri og styrki á vegum;

Horizon Europe

 



Erasmus+

It-all-starts

European Solidarity Corps

 

og Creative Europe.

 

Á hátíðinni verður farið yfir helstu nýjungar og styrkjamöguleika Horizon Europe rannsókna- og nýsköpunaráætlunarinnar, Erasmus+ á sviði menntunar, æskulýðsmála og íþrótta, European Solidarity Corps fyrir sjálfboðaliða- og samfélagsstarf ungs fólks og Creative Europe á sviði skapandi greina.

Einnig verður litið um öxl og árangri síðustu ára fagnað í óformlegu spjalli við styrkþega sem segja sínar sögur. Loks verður sagt frá vinnustofum og nánari kynningum um hverja áætlun sem skipulagðar verða í framhaldinu.

Rannís hefur umsjón með samstarfsáætlunum ESB á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar, menningar og æskulýðsmála á Íslandi.

Sveitarfélög eru hvött til að taka þátt og kynna sér samstarfsáætlanir ESB og þau tækifæri sem í þeim felast.

 

Ný tækifæri - Opnunarhátíð Evrópusamstarfs