Fara í efni
Umsóknarfrestur: Listamannalaun
  • Fyrir hverja? Sjálfstætt starfandi hönnuði, myndlistarmenn, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur og tónskáld.
  • Til hvers? Að efla listsköpun í landinu. Alþingi veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög.

Launasjóðir og greiðslur
 Starfslaun listamanna eru veitt úr sex sjóðum:

  • launasjóði hönnuða
  • launasjóði myndlistarmanna
  • launasjóði rithöfunda
  • launasjóði sviðslistafólks
  • launasjóði tónlistarflytjenda
  • launasjóði tónskálda

Umsjón með sjóðunum er í höndum stjórnar listamannalauna. Starfslaun listamanna eru greidd mánaðarlega. Þau sem njóta starfslauna í sex mánuði eða lengur skulu ekki gegna fullu starfi meðan á starfslaunatímanum stendur. Fjárhæð starfslauna skal koma til endurskoðunar við afgreiðslu fjárlaga ár hvert með tilliti til þróunar launa, verðlags og efnahagsmála [ 4. gr. laga 57/2009].

Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn því aðeins tekin til umfjöllunar að framvinduskýrslu vegna fyrri starfslauna hafi verið skilað til stjórnar listamannalauna, skv. 7. gr. reglugerðar um listamannalaun.

Umsóknarfrestur er 4. október 2021 og skal umsóknum skilað rafrænt í umsóknargátt Rannís.

Nánari upplýsingar veita Óskar Eggert Óskarsson og Ragnhildur Zoëga: listamannalaun@rannis.is

 

Auglýsing um umsóknir starfslauna listamanna

 

 

 

 

Umsóknarfrestur: Listamannalaun