Fara í efni
Umsóknarfrestur: þróunarverkefna búgreina, sauðfjárræktar, nautgriparæktar og hrossaræktar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afurð, stafrænu stjórnsýslukerfi atvinnuvegaráðuneytisins.

Í nautgriparækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska nautgriparækt og fela í sér rannsóknir og þróunarverkefni.

Í sauðfjárrækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska sauðfjárrækt og falla undir kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og/eða þróun í sauðfjárrækt.

Í hrossarækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska hrossarækt og fela í sér að viðhalda verðmæti eiginleika í íslenska hrossastofninum og velferðar hestsins.

Umsóknarfrestur er til 15. mars 2026.

Hægt er að leita eftir ráðgjöf við umsóknarskrif hjá starfsmönnum SSNE sem og starfsmönnum RML.

Umsóknarfrestur: þróunarverkefna búgreina, sauðfjárræktar, nautgriparæktar og hrossaræktar