Fara í efni
Frumkvöðlahádegi

SSNE, SSNV og Eimur standa að vikulegum fræðsluerindum fyrir frumkvöðla og öll þau sem eru forvitin um nýsköpunarheiminn.

Erindin verða haldin á Teams í hádeginu á þriðjudögum, kl. 12:00. Ráðgert er að hvert erindi verði ekki lengra en 30 mínútur, en í kjölfar hvers erindis gefst hlustendum kostur á að spyrja spurninga. Aðgangur er ókeypis en skráning fer fram hér.

Fyrsta erindið verður þriðjudaginn 24. janúar kl. 12:00, en í framhaldinu verða ný erindi öll þriðjudagshádegi fram til 7. mars. Þann 14. mars verður svo boðið til hittings í raunheimum, en staður og stund verða auglýst síðar.

Frumkvöðlahádegi