Fara í efni

Úthlutunarathöfn Frumkvæðissjóðs tilraunaverkefnis brothættra byggða BbII

Úthlutunarathöfn Frumkvæðissjóðs tilraunaverkefnis brothættra byggða BbII

 

Miðvikudaginn 25. mars 2026 kl. 17:00 fer fram úthlutunarathöfn Frumkvæðissjóðs brothættra byggða í félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn.Við athöfnina verða afhentir styrkir úr Frumkvæðissjóði Raufarhafnar og framtíðinni II og Öxarfjarðarsókn II fyrir árið 2026. Markmið sjóðsins er að styðja við frumkvæði, nýsköpun og uppbyggingu í brothættum byggðum og skapa skilyrði fyrir fjölbreyttara atvinnulíf og aukna samfélagslega virkni á svæðinu.

Frumkvæðissjóður brothættra byggða er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í byggðamálum og er ætlað að efla staðbundið framtak með stuðningi við verkefni sem byggja á styrkleikum viðkomandi svæða.

Úthlutunarathöfnin er opin almenningi og eru öll velkomin.

Getum við bætt síðuna?