Fara í efni

Tvær vinnustofur í tengslum við Straumhvörf á Norðurlandi eystra

Tvær vinnustofur í tengslum við Straumhvörf á Norðurlandi eystra

Straumhvörf er nýtt vöruþróunarverkefni í ferðaþjónustu sem nær yfir allt Norður- og Austurland og er ætlað fyrirtækjum í ferðaþjónustu og fulltrúum sveitarfélaga. Tilgangurinn er að nýta tækifæri sem felast í auknu millilandaflugi til Norður- og Austurlands og búa til nýjar vörur og vörupakka í ferðaþjónustu. Að verkefninu standa Austurbrú/SSA, Markaðsstofa Norðurlands, SSNV og SSNE.
 
Skipulag funda og vinnustofa
Vinnustofur verða á fjórum stöðum þar sem þátttakendur fá fræðslu, ráðgjöf og aðstoð við vöruþróun:
1. Hótel Blönduós, 30. október kl. 12:00-17:00
2. Hótel Natur Eyjafirði, 31. október kl. 12:00-17:00
3. Gamla skólahúsinu Bakkafirði, 1. nóvember kl. 12:00-17:00
4. Sláturhúsinu menningarmiðstöð Egilsstöðum, 2. nóvember kl. 10:00-15:00
 
Eftirfylgnifundir á Teams síðar í nóvember. Efnistök ráðast af niðurstöðum úr vinnustofum.
 
Þátttakendum gefst tækifæri á að kynna tilbúnar vörur í Ferðaþjónustuvikunni í janúar.
 
Við hvetjum öll sem starfa í ferðaþjónustu til að taka þátt og nýta tækifærið til að efla ferðaþjónustu í sínu nærumhverfi.
Nauðsynlegt er að skrá sig á vinnustofurnar sjálfar og skilyrði fyrir þátttöku fyrirtækja að þau séu aðilar að Markaðsstofu Norðurlands eða Austurbrú. Gjaldið er kr. 5.500 fyrir hvern þátttakanda og eru innifaldar veitingar á meðan á vinnustofu stendur.
Nánari upplýsingar veita Hjalti Páll Þórarinsson hjá Markaðsstofu Norðurlands, hjalti@nordurland.is og Urður Gunnarsdóttir hjá Austurbrú, urdur@austurbru.is
Getum við bætt síðuna?