Sundmenning eða menning í sundi?
Sundmenning eða menning í sundi?
SSNE vekur athygli rekstraraðila sundlauga á Norðurlandi eystra á nýjum styrkjum til menningarviðburðahalds í sundlaugum landsins.
Styrkirnir eru auglýstir í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi hefur verið skráð á lista UNESCO yfir óáþreifanlega menningararfleifð heims. Markmið þeirra er að stuðla að fjölbreyttu viðburðahaldi í sundlaugum um allt land og efla menningarlíf í heimabyggð. Viðburðir skulu fara fram á árinu 2026.
Til úthlutunar eru 4 m.kr. og getur hver umsókn hlotið allt að 500.000 kr. Umsóknarfrestur er til 20. mars 2026.
SSNE hvetur rekstraraðila sundlauga á svæðinu til að kynna sér þetta tækifæri og kanna möguleika á skapandi samstarfi og viðburðum í sínu nærumhverfi.
Nánari upplýsingar og umsóknarferli má finna á heimasíðu Stjórnarráðsins:
👉 Styrkir til viðburðahalds í sundlaugum landsins