Fara í efni

Straumhvörf - Vöruþróun í ferðaþjónustu

Straumhvörf - Vöruþróun í ferðaþjónustu

Straumhvörf er vöruþróunarverkefni í ferðaþjónustu á Norður og Austurlandi. 

Að verkefninu standa Austurbrú/SSA, Markaðsstofa Norðurlands, SSNV og SSNE með stuðningi frá Byggðastofnun.
Markmiðið er að nýta þau tækifæri sem felast í auknu millilandaflugi til Norður- og Austurlands með samstarfi um þróun á nýjum vörupökkum sem auknar komur farþega beint inn á svæðið bjóða upp á.
 
Skipulag funda og vinnustofa
Undirbúningsfundur á Teams 12. október kl. 10:00, þar sem verkefnið verður kynnt og þátttakendur undirbúnir fyrir næstu skref.
Kynningarfundurinn 12. október er öllum opinn og ekki þarf að skrá sig á hann.
 
Vinnustofur verða á fjórum stöðum þar sem þátttakendur fá fræðslu, ráðgjöf og aðstoð við vöruþróun:
1. Blönduós, 30. október kl. 12:00-17:00
2. Eyjafjörður, 31. október kl. 10:00-15:00
3. Bakkafjörður, 1. nóvember kl. 12:00-17:00
4. Egilsstaðir, 2. nóvember kl. 10:00-15:00
 
Eftirfylgnifundir á Teams síðar í nóvember. Efnistök ráðast af niðurstöðum úr vinnustofum.
 
Þátttakendum gefst tækifæri á að kynna tilbúnar vörur í Ferðaþjónustuvikunni í janúar.
 
Við hvetjum öll sem starfa í ferðaþjónustu til að taka þátt og nýta tækifærið til að efla ferðaþjónustu í sínu nærumhverfi.
Nauðsynlegt er að skrá sig á vinnustofurnar sjálfar og skilyrði fyrir þátttöku fyrirtækja að þau séu aðilar að Markaðsstofu Norðurlands eða Austurbrú. Gjaldið er kr. 5.500 fyrir hvern þátttakanda og eru innifaldar veitingar á meðan á vinnustofu stendur.
 
Nánari upplýsingar veita Hjalti Páll Þórarinsson hjá Markaðsstofu Norðurlands, hjalti@nordurland.is og Urður Gunnarsdóttir hjá Austurbrú, urdur@austurbru.is
Getum við bætt síðuna?