SSNE auglýsir eftir verkefnastjóra miðlunar
SSNE auglýsir eftir verkefnastjóra miðlunar
Verkefnastjóri
Leitað er að öflugum verkefnastjóra miðlunar hjá SSNE. Um 50% starf er að ræða á Húsavík eða á einni af starfsstöðvum SSNE utan Akureyrar.
Helstu verkefni
- Umsjón markaðs- og kynningarmála fyrir SSNE
- Efnissköpun og miðlun gegnum m.a. í gegnum vef- og samfélagsmiðla
- Aðkoma að fjölbreyttum verkefnum og viðburðum sem tengjast verkssviði SSNE
- Fjölbreytt samskipti og samstarf, stuðningur og leiðsögn til fyrirtækja og sveitarfélaga
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af upplýsingamiðlun, markaðssetningu og verkefnastjórnun
- Góð þekking á vefumsjón, samfélagsmiðlum og stafrænni markaðssetningu
- Reynsla af greinarskrifum, gerð kynningarefnis og miðlunar
- Þekking á sviði menningar og skapandi greina kostur
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
- Góð almenn tölvufærni og hæfni til að tileinka sér nýjungar
- Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
- Rík hæfni í samskiptum og samstarfi, vönduð og öguð vinnubrögð
- Hæfni til að koma fram og halda kynningar er kostur
Upplýsingar veitir Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE. Umsóknarfrestur er til 1. apríl nk. og sótt er um á alfred.is. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og einnar blaðsíðu kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur starfsins.
Markmið með starfsemi SSNE er að efla Norðurland eystra sem eftirsótt til búsetu og atvinnu. SSNE skal vera sterkur bakhjarl aðildarsveitarfélaga í sameiginlegum málum þeirra og stuðla að góðu mannlífi, lifandi menningarlífi og öflugri atvinnustarfsemi á starfssvæðinu. Hlutverk SSNE er að þjónusta sveitarstjórnir og atvinnulíf á starfssvæði landshlutasamtakanna til að ná framangreindum markmiðum.