Samtal um skapandi greinar: Hvað þarf að ræða?
Samtal um skapandi greinar: Hvað þarf að ræða?
Fimmtudaginn 5. mars, kl. 8.30-10.15 býður Rannsóknarsetur skapandi greina og CCP til opins fundar og borðsamtals sem fer annars vegar fram á Teams og hins vegar í CCP í Grósku. Við hvetjum áhugasöm og starfandi fólk í skapandi greinum í landshlutanum til að taka þátt í samtalinu.
Saman munum við velta fyrir okkur spurningum um framtíð menningar og skapandi greina:
- Hvað viljum við styrkja?
- Hverju þurfum við að breyta?
- Og hvernig viljum við að íslenskt skapandi landslag þróist á næstu árum?
Markmið fundarins eru að:
- öðlast dýpri innsýn í stöðu og mögulega framtíð skapandi greina á Íslandi
- greina spurningar sem vert er að rannsaka, ræða og þróa frekar
- skapa opið samtalsrými fyrir fjölbreyttan hóp þátttakenda.
Tengslanetið í kringum Rannsóknasetur skapandi greina hefur farið ört vaxandi og við viljum nýta tækifærið til að bjóða fólki úr ólíkum áttum skapandi greina að hittast, miðla reynslu og ræða málin saman. Við hvetjum iðkendur, stjórnendur, fræðafólk, stefnumótendur og alla sem hafa áhuga á skapandi greinum til að taka þátt í samtalinu. Þátttakendur raða sér við borð þar sem hópstjóri heldur utan um umræður og tekur saman helstu punkta.
Þátttakendur geta lagt fram tillögur að umræðuefnum við skráningu. Tillögur að spurningum verða tiltækar við borðin/teams ef þörf krefur en megináherslan er á opið og þátttakendamiðað samtal. Í lok fundar munu hópstjórar fara stuttlega yfir umræður síns borðs og síðan verður opnað fyrir samtal milli borða. Að fundi loknum mun RSSG vinna samanburð út frá borðapunktum og deila samantekt með þátttakendum.
Skráningarhlekkur og nánari upplýsingar
Facebook viðburður