Fara í efni

Lóan er komin – nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina

Lóan er komin – nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina

Lóan er komin á ný og með henni opnast mikilvæg tækifæri fyrir frumkvöðla og nýsköpunarverkefni á landsbyggðinni. Lóa – nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina eru ætlaðir til að styðja við nýsköpun, verðmætasköpun og atvinnulíf utan höfuðborgarsvæðisins, með áherslu á hugvit, þekkingu og nýja færni.

Hlutverk styrkjanna er að efla nýsköpun á landsbyggðinni og stuðla að uppbyggingu byggða og landshluta með nýjum verkefnum. Styrkirnir eru veittir verkefnum sem komin eru af byrjunarstigi og byggja á skilgreiningu OECD á nýsköpun, sem felur meðal annars í sér innleiðingu nýrrar eða verulega endurbættrar vöru, þjónustu, ferlis eða aðferða.

Lóu‑styrkir eru veittir til eins árs í senn og eru eingöngu ætlaðir verkefnum utan höfuðborgarsvæðisins. Markmiðið er að styrkja atvinnulíf og verðmætasköpun á forsendum svæðanna sjálfra og styðja við uppbyggingu vistkerfis fyrir frumkvöðla og nýsköpunarstarfsemi um allt land.

SSNE hvetur frumkvöðla og teymi á Norðurlandi eystra sem eru með nýskapandi hugmyndir eða verkefni í þróun til að kynna sér Lóu‑styrkina vel. Um er að ræða mikilvægan stuðning sem getur skipt sköpum á fyrstu stigum þróunar og hjálpað góðum hugmyndum að verða að raunverulegum verkefnum.

Nánari upplýsingar um Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina, skilyrði og umsóknarferli má finna á vef Stjórnarráðsins:
👉https://www.stjornarradid.is/verkefni/atvinnuvegir/nyskopun/loa-nyskopunarstyrkir-fyrir-landsbyggdina/

SSNE veitir jafnframt ráðgjöf og aðstoð við undirbúning umsókna fyrir áhugasama.

Getum við bætt síðuna?