Listnám á háskólastigi á Norðurlandi – kynningarfundur
Skrifað
05.02.2026
Flokkur:
Fréttir
Atvinnuþróun og ráðgjöf
Menningarmál
Listnám á háskólastigi á Norðurlandi – kynningarfundur
Mikilvægur áfangi í uppbyggingu listnáms á Norðurlandi er nú að verða að veruleika. Háskólinn á Akureyri og Listaháskóli Íslands hafa hlotið styrk til að þróa listnám á háskólastigi á Akureyri, með það að markmiði að auka aðgengi að skapandi námi utan höfuðborgarsvæðisins og styrkja tengsl lista, fræða og samfélags.
Kynningarfundur verður haldinn mánudaginn 9. febrúar klukkan 15:00-16:30, þar sem áherslur, fyrirkomulag og framtíðarsýn verkefnisins verða kynnt nánar.
Fundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á listum, menntun og skapandi þróun á Norðurlandi – hvort sem um er að ræða nemendur, fagfólk eða önnur áhugasöm.
Sjá nánari upplýsingar á vef HA: Listnám á háskólastigi á Akureyri – kynningarfundur | Háskólinn á Akureyri
Dagskrá
-
Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri setur fundinn
-
Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Bandalag íslenskra listamanna, fjallar um mikilvægi listnáms á háskólastigi utan höfuðborgarinnar
-
Ásthildur Björg Jónsdóttir, verkefnisstjóri Listaháskóla Íslands - kynning á fyrirhuguðu námi
-
Umræður - Áslaug Ásgeirsdóttir, Tom Barry og Ásthildur Björg Jónsdóttir
Fundarstjóri verður Dr. Tom Barry, sviðsforseti Hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri
Komandi fundur og námsframboð, er afar ánægjuleg framvinda af undirbúningi og samkomulagi milli háskólanna sem gert var árið 2022 á málþinginu Listnám á háskólastigi sem styrkt var af Sóknaráætlun Norðurlands eystra með það að markmiði að jafna tækifæri til náms, hækka menntunarstig í landshlutanum, auka framboð listnáms í landshlutanum, fjölga störfum tengdum skapandi greinum og að Akureyri yrði eftirsóttur staður til að sækja menntun á sviði lista.
Búsetuval og -festa útfrá námsmöguleikum er þekkt. Ekkert heildstætt listnám á háskólastigi er í boði utan höfuðborgarinnar. Atriði frá nefndu málþingi dregur þetta vel saman: Akureyri sem menningarborg án listnáms á háskólastigi, er eins og steikhús sem býður ekki upp á bernaise sósu.