Fræðsluerindin - Forvitnir frumkvöðlar
Fræðsluerindin - Forvitnir frumkvöðlar
Fræðsluerindin - Forvitnir frumkvöðlar hafa verið haldnir fyrsta þriðjudag í mánuði í vetur af landshlutasamtökunum: SSNE, Austurbrú, SASS, SSNV, SSS, SSV og Vestfjarðarstofu. Í boði hefur verið fjölbreytt fræðsla fyrir frumkvöðla og önnur áhugasöm um nýsköpunarsenuna. Í vetur höfum við m.a farið yfir frumkvöðlaferlið, umsóknarskrif, notkun gervingreindar, skapandi hugsun, viðskiptaáætlanir og storfnun og rekstur smáfyrirtækja. Upptökur af fræðsluerindunum er hægt að nálgast á heimasíðu SSNE. Forvitnir frumkvöðla fræðsluerindin eru komin í sumarfrí en byrja aftur af krafti í september.
Við hvetjum fólk til að setja sig í samband við okkur ef það vill koma verkefnum sínum á koppinn. Atvinnuráðgjafar um landið halda líka almennt vel utan um umsóknarfresti í ólíka sjóði, en einnig má benda á styrkjadagatal skapa.is sem hægt er að nálgast hér.