Pistill framkvæmdastjóra
Pistill framkvæmdastjóra
Febrúar var sannarlega einn af þessum mánuðum sem hreinlega flaug – hann leið svo hratt. Febrúar var líka mánuður þar sem margir þræðir í starfsemi SSNE lágu saman – þræðir sem snerta kjarnaverkefni SSNE – að efla samstarf, efla tengsl og skapa tækifæri fyrir uppbyggingu Norðurlands eystra.
Í febrúar birtist fyrsta tölublað Púlsins – Norðurland í tölum. Þessi nýja útgáfa er hluti af verkefni SSNE og áhersluverkefnis Sóknaráætlunar Norðurlands eystra um auknar greiningar um stöðu mála í landshlutanum. Markmiðið er að varpa skýrara ljósi á þróun samfélags, atvinnulífs og byggðar með aðgengilegum og gagnadrifnum hætti. Slíkar greiningar eins og birtist m.a. í þessu fyrsta tölublaði, sýna okkur ekki bara hvernig staðan er – þær hjálpa okkur líka að sjá hvað er mögulegt, hvar áskoranirnar liggja og hvaða sóknarfæri eru raunhæf.
Þegar við bætum svo við samtalinu sem átti sér stað á opnum fundi um húsnæðismál landshlutans sést svo skýrt mikilvægi þess gögn og reynsla eiga að tala saman. Íbúar, sveitarstjórnir, fjárfestar og félagasamtök, við erum öll að fást við sama verkefnið: Hvernig tryggjum við að fólk hafi bæði ástæðu og efni á að búa hér?
Eitt af því sem kom skýrt fram í febrúar er krafturinn sem kemur beint úr byggðunum sjálfum. Fjöldi umsókna í Frumkvæðissjóð Brothættra byggða á Raufarhöfn og í Öxarfirði sýnir skýrt að samfélögin á svæðinu eru tilbúin að stíga skref fram á við, ef þau fá til þess svigrúm og stuðning. Á sama tíma var svo sérstaklega gleðilegt að norðausturhornið hlaut þrjá styrki úr Byggðaáætlun sem munu styðja við mikilvæg verkefni sem hafa það að markmiði að efla bæði atvinnulíf og innviði.
Þetta er þó ekki bara fjárhagsleg innspýting – þetta er einnig merki um trú á svæðið, og þessi stuðningur hvetur okkur til að halda áfram að byggja upp farvegi þar sem frumkvöðlar, sveitarfélög og íbúar geta látið hugmyndir verða að veruleika.
Það var ýmislegt fleira í gangi hjá okkur í febrúar, ekki síst hvað snýr að stuðningi við frumkvöðla og nýsköpun. Þannig fór fram ráðstefnan Norðanstormur í samstarfi við okkar góðu systursamtök á Norðurlandi vestra (SSNV) sem heppnaðist mjög vel. Í því samhengi má minna á að SSNE er nú að leita að öflugum frumkvöðli á Norðurlandi eystra til að taka þátt í Tonik 2026 í Færeyjum.
Í stuttu máli má segja að febrúarmánuðir hafi sýnt okkur að þrátt fyrir ýmsar áskoranir er fjöldi verkefna í landshlutanum á hraðferð fram á við; að íbúar, fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir eru tilbúin til að taka þátt í því starfi sem þarf til að tryggja að Norðurland eystra verði áfram staður þar sem lífsgæði, nýsköpun, menning og samfélagsstyrkur tvinnast saman og við höfum svo sannarlega trú á landshlutanum.
Mars byrjar jafnhratt og febrúar endaði. Á morgun fer fram kynningarfund Íslandsstofu um tækifæri í útflutningi sem haldinn verður í Hofi á morgun kl. 11:30. Þá verður Krubbur hugmyndahraðhlaup haldinn á Húsavík 20.-21. mars með tveimur áskorunum í ár. Stærsti viðburður mánaðarins verður þó Ársþing SSNE sem haldið verður í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík þann 26. mars næstkomandi. Það er sannarlega nóg framundan!