Fara í efni

SSNE leitar að frumkvöðli til að taka þátt í Tonik 2026 í Færeyjum

SSNE leitar að frumkvöðli til að taka þátt í Tonik 2026 í Færeyjum

SSNE leitar að öflugum frumkvöðli með metnaðarfullt verkefni á Norðurlandi eystra til að taka þátt í Tonik 2026, einni helstu nýsköpunarráðstefnu Norðurlanda, sem fer fram í, Tórshöfn, 8. maí 2026 n.k.

Tonik er alþjóðlegur vettvangur sem sameinar frumkvöðla, listafólk, tæknisérfræðinga, fjárfesta og leiðtoga úr atvinnulífinu í lifandi umhverfi þar sem nýjar hugmyndir og samstarf fæðast. SSNE mun styrkja einn frumkvöðul til að taka þátt og tryggja honum sæti í pitch‑keppni hátíðarinnar, sem er einstakt tækifæri til að kynna verkefni sitt fyrir öflugum hópi fjárfesta og lykilaðila úr norræna sprotaheiminum.

Keppnin veitir:

  • Tækifæri til að stíga á svið og kynna hugmyndina sína
  • Tengslamyndun með leiðandi fjárfestum og samstarfsaðilum
  • Möguleika á verðlaunum og aukinni sýnileika í alþjóðlegu umhverfi

Til að sækja um þarf að fylla út eftirfarandi eyðublað. SSNE.is

Valnefnd getur óskað eftir ítarupplýsingum um verkefnið.
Frestur til að sækja um er 13. mars.

Heimasíða Tonik.

Getum við bætt síðuna?