Fara í efni

Breytingar á viðverutíma SSNE vegna styrkumsókna í Uppbyggingarsjóð

Breytingar á viðverutíma SSNE vegna styrkumsókna í Uppbyggingarsjóð

Við verðum öll að gæta ítrustu varkárni og leggja okkar lóð á vogarskálarnar í baráttunni við veiruna. Þar er ein af megináherslunum að lágmarka samgang fólks á milli. Því bjóðum við nú rafræna aðstoð til allra þeirra sem hyggjast sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð en hægt er að bóka tíma hjá ráðgjöfum SSNE í gegnum tölvupóst eða í síma 464 5400. Opið er fyrir umsóknir til 4 nóvember og ekki er útilokað að við heimsækjum áður auglýsta staði áður en fresturinn rennur út, en til þess þarf neyðarstigi að vera aflétt.

Um leið og við þökkum skilning á þessum nauðsynlegu breytingum, viljum við hvetja ykkur öll sem hafið góðar hugmyndir í pokahorninu að hafa samband og bóka tíma til að fá hjálp við undirbúning eða frágang umsóknar.

Það eru mörg áhugaverð verkefni sem hlotið hafa styrk úr Uppbyggingarsjóði en hér má sjá lista yfir þau. Verður þitt verkefni á listanum 2021?

Við hlökkum til að heyra frá ykkur.

Ari Páll           aripall@ssne.is        Verkefnastyrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar
Rebekka       rebekka@ssne.is    Verkefnastyrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar
Vigdís             vigdis@ssne.is        Verkefnastyrkir á sviði menningar & stofn-og rekstrarstyrkir á sviði menningar

Getum við bætt síðuna?