Fara í efni

Bíllausi dagurinn á föstudaginn

Bíllausi dagurinn á föstudaginn

Nú stendur yfir evrópska samgönguvikan sem lýkur á föstudaginn með bíllausa deginum. Á bíllausa deginum eru öll hvött til að skilja bílinn eftir heima og nýta vistvæna samgöngumáta. Hægt er að nýta fallega haustveðrið og ganga, hjóla eða nýta almenningssamgöngur þar sem þær eru í boði.

Þema evrópsku samgönguvikunnar í ár er orkusparnaður. Með aukinni notkun á almenningssamgöngum og virkum ferðamáta spörum við orku úr jarðefnaeldsneyti og spörum líka peninga.

Getum við bætt síðuna?