Fara í efni
Umsóknarfrestur: Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla

Hvað er styrkt og áherslusvið árið 2026?

Þróunarverkefni í leik-, grunn- og framhaldsskólum.

Áherslusvið sjóðsins fyrir árið 2026 eru:

  • Grunnþáttur menntunar: Lýðræði og mannréttindi.
  • Nýjar leiðir í kennsluaðferðum og námsmati með sjálfstæði og virkni nemenda að markmiði.

Hvað er ekki styrkt?

  • Ekki eru veittir styrkir til kjarnastarfsemi eða reglubundins reksturs.
  • Að jafnaði er vinna starfsmanna í verkefni ekki styrkt nema ljóst þyki af lýsingu að sú vinna falli utan starfssviðs og sé viðbót við starfsskyldu en ekki hluti af henni. Sé verkefnið hluti af vinnu starfsmanns er kostaður sem af því hlýst skráður sem mótframlag.
  • Að jafnaði eru ekki veittir styrkir til tækjakaupa eða uppbyggingu aðstöðu nema að takmörkuðu leiti ef verkefni eru háð því og ljóst þyki að sá kostnaður falli ekki undir kjarnastarfsemi eða reglubundinn reksturs.
  • Almennt á námsgagnagerð betur heima í Þróunarsjóði námsgagna.

Bent er á að úthlutaðar upphæðir úr Sprotasjóði síðustu ár hafa almennt verið á bilinu 500 þúsund til 7 milljónir.

Hverjir geta sótt um?

Leikskólastjórar, skólastjórar og skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstaka kennara. Aðrir aðilar geta einnig sótt um en þurfa þá að skila inn staðfestingu á þátttöku skóla með umsókn.

Skilyrði úthlutunar

Sjá matskvarða Sprotasjóðs. Samkvæmt 6. grein reglugerðar um Sprotasjóð leik-,grunn- og framhaldsskóla skal mat á umsóknum einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum:

  • gildi og mikilvægi verkefnis með tilliti til hlutverks Sprotasjóðs,
  • verkefni feli í sér þróunarstarf innan skóla, samstarf milli skóla eða skólastiga,
  • verkefnið falli að þeim áherslum eða áherslusviðum er fram koma í auglýsingu,
  • líkum á því að umsækjanda/umsækjendum takist að ná þeim markmiðum er verkefnið miðar að,
  • starfsferli og faglegum eða fræðilegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda m.t.t. þeirra krafna sem verkefnið gerir til þeirra.

Nánari upplýsingar

Ráðgjöf varðandi hugmyndavinnu og umsóknir

  •  Rannís tekur á móti fyrirspurnum á sprotasjodur(hja)rannis.is
  • SSNE veitir ráðgjöf til einstaklinga, samtaka og fyrirtækja, ráðgjöfin hefur verið mikilvægur hlekkur í stoðkerfi nýsköpunar í landsbyggðunum sem stuðningur til að móta hugmyndir, fjármagna þær og koma þeim í réttan farveg. Vinsamlegast sendið beiðni um ráðgjöf á ssne(hjá)ssne.is
Umsóknarfrestur: Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla