Fara í efni
Umsóknarfrestur: menningarviðburðir í sundlaugum

Í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi var staðfest á lista UNESCO yfir óáþreifanlega menningararfleifð heims auglýsir menningar-,nýsköpunar- og háskólaráðuneytið í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands eftir umsóknum um styrki til menningarviðburða í sundlaugum landsins.

Markmið styrkjanna er að stuðla að fjölbreyttu viðburðahaldi í sundlaugum um allt land. Viðburðunum er ætlað hvoru tveggja að vekja athygli á sundlaugamenningu og auðga menningarlíf í heimabyggð og nærumhverfi. Viðburðir skulu fara fram á árinu 2026.

Hvatt er til samstarfs sveitarfélaga (rekstraraðila sundlauga), safna og menningarstofnana, félagasamtaka og einstaklinga um viðburði, og þarf staðfesting á samstarfinu að fylgja með umsókninni.

Til úthlutunar eru 4 m.kr. Hámarksstyrkur er 500 þús. kr.

Umsóknarfrestur er til 20. mars 2026. Umsóknir skulu berast í gegnum umsóknagátt ráðuneytisins: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Mynd er fengin úr frétt af vef ráðuneytisins, ljósmyndari er Ragnar Th Sigurdsson.

Umsóknarfrestur: menningarviðburðir í sundlaugum