Fara í efni
Umsóknarfrestur: Almennir- og ferðastyrkir Hönnunarsjóðs

Hönnunarsjóður veitir styrki til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs: þróunar og rannsókna, verkefna og markaðsstarfs auk ferðastyrkja. MIðstöð hönnunar og arkitektúrs heldur utan um sjóðinn.

Hlutverk Hönnunarsjóðs er að efla þekkingu, atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi en sjóðurinn er fjármagnaður af stjórnvöldum.

Hönnunarsjóður stuðlar einnig að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar með því að styrkja kynningar- og markaðsstarf erlendis.

Almennir styrkir:

Hámarksupphæð almennra styrkja er 10 milljónir króna, skiptast tegundir almennra styrkja í eftirfarandi flokka:

Þróunar- og rannsóknarstyrkir

Styrkja rannsóknir og þróun nýrra hugmynda eða lausna. Verkefni sem hlotið hefur þróunar- og rannsóknarstyrk á möguleika á að fá verkefnastyrk síðar.

Verkefnastyrkir

Styrkja nýjar hugmyndir eða lausnir sem búið er að þróa og móta og eru komin á útfærslu- og framkvæmdastig. Verkefni sem hlotið hefur verkefnastyrk á möguleika á að fá markaðs- og kynningarstyrk síðar.

Markaðs- og kynningarstyrkir

Styrkja verkefni sem komin eru af útfærslu- og framkvæmdastigi og eru fullmótuð og tilbúin til markaðssetningar.

Ferðastyrkir

Auka möguleika hönnuða og arkitekta á því að taka þátt í erlendum samstarfs- og kynningarverkefnum, sýningum, viðburðum, ráðstefnum eða viðskiptastefnumótum. Hægt er að sækja um ferðastyrk fyrir einn einstakling eða fleiri til sömu ferðar. Veittir verða allt að 15 ferðastyrkir í hverri úthlutun að upphæð 150 þúsund hver. Mælt er með því að umsækjendur ferðastyrkja vegna sama verkefnis/ferðar sæki um sem hópur en ekki hver fyrir sig.

 

Nánari upplýsingar og ráðgjöf:

  • Umsóknum skal skilað rafrænt í sérstöku umsóknarformi sem hægt er að nálgast hér.
  • Úthlutun er áætluð 12. mars 2026.
  • Styrkþegar verða að gera ráð fyrir að það geti tekið allt að 6 vikur að fá fyrsta hluta fjárins afgreiddan.
  • Leiðbeiningar má finna hér.
  • Starfsfólk miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs svarar spurningum, vinsamlegast hafið samband sjodur@honnunarmidstod.is og/eða +354 771 2200
  • Starfsfólk SSNE veitir jafnframt ráðgjöf fyrir umsóknarskrif og mótun hugmynda, vinsamlegast sendið email á ssne@ssne.is
Umsóknarfrestur: Almennir- og ferðastyrkir Hönnunarsjóðs