Rannís, í samstarfi við utanríkisráðneytið og skrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES í Brussel (FMO), stendur fyrir rafrænum kynningarfundi um möguleika íslenskra aðila til þátttöku í verkefnum á vegum Uppbyggingasjóðs EES á nýju sjóðstímabili.
Fundurinn verður haldinn á TEAMS föstudaginn 17. apríl kl. 9.00-10.00. (Skráðir þátttakendur fá sendan hlekk daginn áður).
Markmið kynningarfundarsins er að miðla nýjum upplýsingum um áætlanir sjóðsins. Markhópur fundarins eru allir sem hafa áhuga á að taka þátt í umsóknum á vegum Uppbyggingarsjóðs EES á öllum áætlunarsviðum. Þar með talið EES-sjóð fyrir borgaraleg samtök (e. Civil Society Fund). Öll köll sem birt verða á vegum sjóðsins má nálgast á erlendri vefsíðu Uppbyggingarsjóðs EES.
Upplýsingar og skráning á fundinn má finna hér.