Vorfundur landshlutasamtaka og ársfundur Byggðastofnunar á Kirkjubæjarklaustri
Vorfundur landshlutasamtaka og ársfundur Byggðastofnunar á Kirkjubæjarklaustri
Vorfundur landshlutasamtaka og Byggðastofnunar fór fram dagana 27.–28. maí á Kirkjubæjarklaustri. Fundurinn var haldinn á Hótel Klaustri og kom þar saman starfsfólk landshlutasamtaka víðs vegar af landinu til að vinna að sameiginlegum verkefnum og efla samstarf.
Vorfundurinn að þessu sinni var sérstaklega hugsaður sem vinnufundur þar sem áhersla var lögð á þróun og styrkingu ráðgjafar á landsbyggðinni. Unnið var með verkefni sem skilgreind hafa verið af nýstofnuðu fagráði atvinnuráðgjafa og var fókus fundarins því fyrst og fremst á ráðgjöfina sjálfa, verkfæri hennar og frekari uppbyggingu.
Á fyrri degi fundarins fór fram vinnustofa með fulltrúum Rannís þar sem lögð var áhersla á að efla samstarf við landshlutasamtökin og Byggðastofnun, meðal annars með það að markmiði að styðja betur við umsóknir frá landsbyggðinni í sjóði Rannís og auka samkeppnishæfni þeirra.
Á seinni degi var unnið áfram að þróun ráðgjafarhlutverksins, þar sem fjallað var um innri verkfærakistu ráðgjafa, uppbyggingu handbókar ráðgjafans og hvernig meta megi árangur ráðgjafar með markvissum hætti.
Í tengslum við fundinn fór einnig fram ársfundur Byggðastofnunar í félagsheimilinu Kirkjuhvoli, þar sem farið var yfir starfsemi stofnunarinnar og mikilvæg málefni á sviði byggðaþróunar. Á ársfundinum tók Helena Eydís, fulltrúi í stjórn SSNE, við styrk fyrir hönd samstarfsaðila vegna rannsóknarverkefnisins Samfélagsáhrif menningar í landsbyggðum: Lífsánægja, félagsleg tengsl og búseta, sem miðar að því að varpa ljósi á áhrif menningar og skapandi greina á lífsgæði, félagsleg tengsl og búsetu fólks í dreifðum byggðum.
Fundurinn var jafnframt tækifæri til að efla tengsl milli samstarfsaðila og miðla þekkingu, en slíkir fundir gegna lykilhlutverki í að samræma áherslur og styrkja stoðkerfi atvinnuþróunar og nýsköpunar um allt land