Fara í efni

Verslun í dreifbýli – auglýst eftir umsóknum

Verslun í dreifbýli – auglýst eftir umsóknum

Innviðaráðherra auglýsir eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð A.9 Verslun í dreifbýli.

Markmið aðgerðarinnar er að styðja við rekstur dagvöruverslana í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu.

Allt að 18 milljónum kr. verður veitt vegna ársins 2026. Annars vegar er hægt að sækja um rekstrarstyrk og hins vegar styrk til búnaðarkaupa. Umsækjendur skulu taka mið af úthlutunarreglum innviðaráðherra og auglýsingu um styrkina (já tengla að neðan).

Umsóknarfrestur er til miðnættis sunnudaginn 9. nóvember 2025. Umsóknum skal skilað í gegnum rafrænt umsóknarform Byggðastofnunar. Þriggja manna valnefnd metur allar umsóknir og gerir tillögu til innviðaráðherra að úthlutun styrkja. Áætlað er að niðurstöður ráðherra liggi fyrir í desember 2025.

Getum við bætt síðuna?