Fara í efni

Staðarfundur stjórnar SSNE í Eyjafjarðarsveit

Staðarfundur stjórnar SSNE í Eyjafjarðarsveit

Í gær var 74. fundur stjórnar SSNE haldinn í Eyjafjarðarsveit. Stjórnin fundar almennt með aðstoð Teams, en tvisvar á ári hittist stjórnin á staðfundum og er þá reynt að heimsækja ólík sveitarfélög innan landshlutans. Á þeim fundum er tækifærið gjarnan nýtt og farið i skoðunarferð í stofnanir og fyrirtæki á svæðinu. Á stjórnarfundinum var meðal annars farið nokkuð ítarlega yfir fyrirkomulag Uppbyggingarsjóðs og áhersluverkefni, en í ár eru fyrstu úthlutanir sem taka mið af nýrri Sóknaráætlun Norðurlands eystra og því ýmsu að huga að. Þá var einnig farið yfir stöðuna á Bakka við Húsavík, og samþykkt verklag við endurskoðun Samgöngu- og innviðastefnu SSNE.

Eftir góðan stjórnarfund fór fulltrúi Eyjafjarðarsveitar í stjórn SSNE ásamt stjórnarmeðlimum víðsvegar um sveitarfélagið og var byrjað á að skoða nýjan fimm deilda leikskóla sveitarinnar sem verður opnaður í haust. Þá voru hrossaræktendur að Hólshúsum heimsóttir, svínabændur á Sölvastöðum og kornbændur í kornþurrkstöðinni að Laugalandi. Það er greinilega mikill hugur í íbúum Eyjafjarðarsveitar og mikil uppbygging og þróun sem þar er í gangi, ekki síst á sviði landbúnaðar.

Stjórn SSNE þakkar fyrir sérstaklega góðar móttökur í sveitarfélaginu.

Getum við bætt síðuna?