Pistill framkvæmdastjóra: Farsæld, nýsköpun og mikilvægi öflugrar hagsmunagæslu
Pistill framkvæmdastjóra: Farsæld, nýsköpun og mikilvægi öflugrar hagsmunagæslu
Haustin eru alla jafna annasamur tími og var septembermánuður einstaklega öflugur í ár. Mánuðurinn var óvenju viðburðaríkur hjá SSNE og einkenndist öðru fremur af samtali, samstöðu og skýrri sýn á þau verkefni sem fram undan eru á Norðurlandi eystra.
Pistill framkvæmdastjóra: September 2026
Þessi fyrsti haustmánuður hófst af krafti með Farsældardegi Norðurlands eystra í Hofi þann 4. september. Þar var leiddur saman fjölbreyttur hópur fagfólks, stjórnenda og kjörinna fulltrúa sem vinnur að málefnum barna og fjölskyldna í landshlutanum. Þar kom skýrt fram hversu miklu máli skiptir að skapa reglulegan vettvang til að miðla reynslu, læra hvert af öðru og efla samstarf þvert á kerfi og stofnanir. Markmiðið er skýrt: Þjónustan þarf að taka mið af þörfum barnsins og fjölskyldunnar, en ekki öfugt. SSNE hefur lagt áherslu á að styðja við þetta samstarf á svæðinu í samræmi við ákvörðun sveitarfélaganna á svæðinu og samning við barna- og menntamálaráðuneyti, og mun áfram fylgja því mikilvæga verkefni eftir.
Haustþing SSNE var haldið í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík 9. september og var það fyrsta þing samtakanna á nýju kjörtímabili sveitarstjórna. Þingið var vel sótt og skapaði gott rými til að ræða stöðu verkefna og setja sameiginlegar áherslur til næstu ára. Fjallað var sérstaklega um þær breytingar sem fram undan eru á heilbrigðiseftirliti og mikilvægi þess að sveitarfélögin undirbúi af ábyrgð þau verkefni sem áfram verða á þeirra höndum, auk þess sem sérstaklega var unnið með drög að stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Ályktanir haustþingsins, sem ég hvet ykkur til að skoða, endurspegla vel þá breidd sem einkennir hagsmunagæslu SSNE. Þar var meðal annars fjallað um Akureyrarflugvöll og öryggisinnviði, orkuöryggi, fjarskipti, ferðaþjónustu, menntun, heilbrigðis- og endurhæfingarþjónustu, opinber störf og farsæld barna óháð búsetu. Þingið fól jafnframt stjórn SSNE að undirbúa sérstakt málþing um innviði og öryggismál á Norðurlandi eystra í byrjun næsta árs.
Þá var í tengslum við þingið undirritaður samstarfssamningur sveitarfélaganna tíu við Bergið Headspace um aukna stuðnings- og ráðgjafarþjónustu fyrir ungmenni á Norðurlandi eystra. Samningurinn er ánægjulegt dæmi um hvernig sameiginlegt frumkvæði sveitarfélaganna getur bætt aðgengi að þjónustu og stutt við snemmtæka íhlutun, óháð búsetu. Sameiginleg rödd sveitarfélaganna skiptir máli inn í verkefni SSNE og verða niðurstöður haustþingsins nýttar í áframhaldandi vinnu samtakanna, ekki síst í samtali við stjórnvöld og aðra samstarfsaðila.
Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra opnaði fyrir umsóknir í september. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar, menningar og samfélagsuppbyggingar og hefur þannig bein áhrif á grósku og framtak um allan landshlutann. Ég hvet öll sem ganga með góða hugmynd til að kynna sér möguleika sjóðsins og nýta sér ráðgjöf starfsfólks SSNE við undirbúning umsókna. Ráðgjöf vegna Uppbyggingarsjóðs er í boði víða um landshlutann en umsóknarfrestur rennur út 21. október kl. 14:00.
Það er alltaf mikil orka í tengslum við nýsköpun og verkefni HönnunarÞing fór fram á Húsavík dagana 25.–26. september undir yfirskriftinni ORKA. Þar mættust hönnun, nýsköpun, sjálfbærni og samfélagsþróun í fjölbreyttri dagskrá sem leiddi saman fólk og hugmyndir úr ólíkum geirum. SSNE tók þátt í skipulagningu þingsins ásamt Hraðinu og Þekkingarneti Þingeyinga sem ber hitann og þungann af verkefninu. Viðburðurinn sýndi vel þann sköpunarkraft sem býr á svæðinu og mikilvægi þess að skapa vettvang þar sem hugmyndir fá að kvikna, tengsl myndast og ný verkefni verða til.
Í mánuðinum hélt starfsfólk SSNE jafnframt áfram að efla tengslin við sveitarfélögin. Meðal annars var fundað með starfsfólki Þingeyjarsveitar á Laugum, þar sem starfsemi samtakanna var kynnt og rætt hvernig nýta mætti þekkingu og þjónustu SSNE enn betur. Slík samtöl eru mikilvæg, ekki síst í upphafi nýs kjörtímabils, og stefnt er að því að eiga sambærilega fundi með sveitarstjórnum og starfsfólki sveitarfélaganna á næstu mánuðum. Mánuðinum lauk svo með kjördæmaviku, sem skapaði tækifæri fyrir sveitarstjórnir og stofnanir í landshlutanum til samtals við þingmenn um áherslur og hagsmunamál landshlutans.
Undir lok mánaðar og fyrstu daga október voru þingmenn Norðausturkjördæmis svo á ferð um kjördæmið ásamt framkvæmdastjóra SSNE í kjördæmaviku. Hittum við m.a. sveitarstjórnarfólk, skólastjórnendur, atvinnurekendur og fulltrúa stofnanna á áhugaverðum fundum. Þetta fyrirkomulag í stórum kjördæmum landsbyggðanna sýnir sterkt þörfina á fulltrúum byggðarlaga sem lengst eru frá miðju stjórnsýslunnar.
Eins og gefin hefur verið innsýn í hér að ofan þá er haustið mikilvægur tími fyrir samstarf og hagsmunagæslu sveitarfélaganna. Auk Haustþings SSNE fór Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga fram á Akureyri í haust og fram undan er Fjármálaráðstefna Sambandsins. Ráðstefnan nýtist sveitarstjórnarfólki einkar vel í þeirri umfangsmiklu vinnu við fjárhagsáætlanagerð sem nú er hafin hjá sveitarfélögunum.
Það er eflaust ótalmargt sem ég er að gleyma að nefna hér eftir viðburðaríkan septembermánuð en ég hvet ykkur til að fylgjast með okkur á ssne.is og á samfélagsmiðlum enda margt spennandi framundan í októbermánuði!
Albertína Fr. Elíasdóttir
Framkvæmdastjóri SSNE