Pistill framkvæmdastjóra
Pistill framkvæmdastjóra
Maímánuður var viðburðaríkur í starfsemi SSNE og endurspeglaði vel þá breidd sem einkennir starf samtakanna. Starfsfólk SSNE tók meðal annars þátt í nýsköpunarhátíðinni Tonik í Færeyjum, ásamt frumkvöðlum af Norðurlandi eystra en þar var norðlenskt frumkvöðlastarf kynnt sérstaklega og tengsl við alþjóðlegt samstarfsnet frumkvöðla efld. Slík tengslamyndun skiptir miklu máli fyrir svæðið, ekki síst þegar horft er til framtíðarvaxtar og fjölbreytni í atvinnulífi í landshlutanum.
Menning og skapandi greinar voru einnig áberandi í mánuðinum. Viðburðurinn Fiðringur á Norðurlandi, sem haldinn var í Menningarhúsinu Hofi í byrjun mánaðarins, gaf ungmennum í 8.–10. bekk tækifæri til að tjá sig með list og sviðsframkomu. Fiðringur er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra og er gott dæmi um mikilvægi þess að skapa vettvang fyrir ungt fólk til þátttöku og sköpunar. Þá bauð Tónlistarmiðstöð Íslands upp á ráðgjöf fyrir tónlistarfólk á svæðinu og var hún nokkuð vel nýtt.
Það voru einnig fleiri áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra sem voru sýnileg í maímánuði en Markaðsstofa Norðurlands stóð fyrir rafrænum kynningarfundi í samstarfi við SSNE og Austurbrú undir yfirskriftinni „Lúxus eða lífsgæði?“, en þar var fjallað um niðurstöður rannsóknarverkefnis dr. Þórodds Bjarnasonar um samfélagsleg áhrif millilandaflugs um Akureyrarflugvöll.
Þá tók starfsfólk SSNE þátt í vorfundi Byggðastofnunar ásamt hinum landshlutasamtökunum, en hann var haldinn á Kirkjubæjarklaustri í ár, samhliða ársfundi Byggðastofnunar. Byggðastofnun er SSNE ákaflega mikilvægur samstarfsaðili og alltaf gott að eiga samtöl með þeim og hinum landshlutasamtökunum um byggðaþróun og atvinnulíf á landsbyggðinni.
Maímánuður var jafnframt mánuður breytinga. Í kjölfar sveitarstjórnarkosninga hefst nýtt kjörtímabil og nýir fulltrúar taka við keflinu í sveitarfélögunum. Af því tilefni hefur starfsfólk SSNE tekið saman hagnýtar upplýsingar fyrir sveitarstjórnarfólk, en að auki vekjum við athygli á því að haustþing SSNE verður haldið 9. september næstkomandi í Dalvíkurbyggð.
Á fyrstu dögum júní mánaðar verður einnig skipuð ný stjórn SSNE, í samræmi við samþykktir samtakanna. Starfsfólk SSNE vill við það tækifæri færa fráfarandi stjórn SSNE einlægar þakkir fyrir gott og farsælt samstarf á liðnu kjörtímabili. Stjórnin hefur veitt samtökunum skýra leiðsögn, sýnt ábyrgð í forgangsröðun verkefna og lagt sitt að mörkum til að styrkja stöðu samtakanna sem sameiginlegs vettvangs sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Um leið og við bjóðum nýja stjórn velkomna til starfa þá óskum við öllu fráfarandi stjórnarfólki velfarnaðar í þeim verkefnum sem fram undan eru hjá þeim.
Albertína Fr. Elíasdóttir
Framkvæmdastjóri SSNE