Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í Startup Landið – hraðall fyrir nýsköpunarverkefni á landsbyggðinni

Opið fyrir umsóknir í Startup Landið – hraðall fyrir nýsköpunarverkefni á landsbyggðinni

Nú er opið fyrir umsóknir í  Startup Landið, sjö vikna viðskiptahraðal sem ætlaður er frumkvöðlum og nýsköpunarverkefnum á landsbyggðunum. Hraðallinn hefst 24. september og lýkur með lokaviðburði 5. nóvember þar sem þátttakendur kynna verkefni sín.

Startup Landið veitir þátttakendum aðgang að sérfræðiráðgjöf, tengslaneti og möguleikum á fjármögnun. Markmiðið er að styðja við vöxt og þróun nýsköpunarverkefna sem eru komin af hugmyndastigi, hvort sem þau eru unnin af einstaklingum, sprotafyrirtækjum eða innan rótgróinna fyrirtækja.

Hvað býður hraðallinn upp á?

Aðgang að reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum og fjárfestum
Vinnustofur og fræðslufundi
Tækifæri til að byggja upp öflugt tengslanet
Tvær staðbundnar vinnustofur með þátttöku allra teyma
Mestu leyti rafrænt fyrirkomulag sem hentar þátttakendum um allt land


Hverjir geta sótt um?

Leitast er eftir frumkvöðlum, sprotafyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum á landsbyggðunum sem eru komin af hugmyndastigi og vilja þróa verkefnið sitt áfram með stuðningi sérfræðinga og tengslanets.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til og með  1. september. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar má finna hér.

Startup Landið er samstarfsverkefni landshlutasamtakanna: SSNE, SSNV, Vestfjarðarstofu, Austurbrúar, SASS, SSS og SSV.

Nánari upplýsingar veitir Anna Lind, annalind@ssne.is eða í síma 8487440. 

Getum við bætt síðuna?