Fara í efni

Föstudagsfundur SSNE: Hvar eru ríkisstörfin?

Á fundinum kynnir Þorkell Stefánsson, sérfræðingur hjá Byggðastofnun, nýja greiningu á staðsetningu …
Á fundinum kynnir Þorkell Stefánsson, sérfræðingur hjá Byggðastofnun, nýja greiningu á staðsetningu ríkisstarfa, en þróunin er mjög ólík eftir landshlutum.

Föstudagsfundur SSNE: Hvar eru ríkisstörfin?

Á föstudagsfundi SSNE þann 2. október kl. 12:00 kynnir Þorkell Stefánsson, sérfræðingur hjá Byggðastofnun, nýja greiningu stofnunarinnar á staðsetningu ríkisstarfa. Þar kemur fram að hægt hefur á fjölgun stöðugilda á vegum ríkisins, en þróunin er ólík eftir landshlutum.
 
Í árslok 2025 voru ríkisstöðugildi 29.139 og hafði þeim fjölgað um 103 frá fyrra ári. Mest fjölgaði á Suðurlandi, um 80 stöðugildi, en næstmest á Norðurlandi eystra, um 68. Þar af bættust 53 stöðugildi við á Akureyri. Um 70% ríkisstöðugilda eru enn á höfuðborgarsvæðinu.
 
Þorkell mun fara yfir helstu niðurstöður skýrslunnar Hvar eru ríkisstörfin 31.12.2025? og ræða hvað tölurnar segja um dreifingu opinberra starfa. Skýrsluna má lesa á vef Byggðastofnunar (sjá hér)
 
Fundurinn er rafrænn og öllum opinn. Hægt er að tengjast fundinum hér:
https://teams.microsoft.com/meet/312892997623420?p=KLjCUwqzfHTrOtmukH
Getum við bætt síðuna?