Fara í efni

Forvitnir frumkvöðlar - Gervigreindarverkfæri frumkvöðulsins

Forvitnir frumkvöðlar - Gervigreindarverkfæri frumkvöðulsins

Á morgun, þriðjudaginn 2. júní kl. 12:00, fer fram síðasta rafræna hádegiserindi fræðsluraðarinnar Forvitnir frumkvöðlar þetta starfsárið.

Forvitnir frumkvöðlar eru sameiginleg fræðsluröð landshlutasamtakanna um allt land, þar sem boðið er upp á mánaðarleg hádegiserindi fyrir frumkvöðla og annað áhugafólk um nýsköpun. Erindin eru haldin á Teams, eru öllum opin og að kostnaðarlausu og hafa það að markmiði að veita hagnýta og aðgengilega fræðslu sem nýtist í raunverulegu starfi.

Að þessu sinni verður sjónum beint að gervigreindarverkfærum og hvernig þau nýtast í daglegu starfi frumkvöðla. Fulltrúar frá GoFlowtics fara yfir þau verkfæri sem raunverulega skipta máli, allt frá hugmyndavinnu og vöruþróun til markaðssetningar og daglegs rekstrar. Einnig deila þau reynslu sinni af því sem hefur reynst vel og því sem síður hefur skilað árangri.

Markmið erindisins er einfalt: að þátttakendur fari út með skýrari mynd af því hvaða verkfæri nýtast þeim best – og með aukið sjálfstraust til að nýta þau í eigin verkefnum.

Hlekkur á erindi

Með þessu lýkur fræðsluröðinni þetta starfsárið. Forvitnir frumkvöðlar eru sameiginleg mánaðarleg fræðsluerindi landshlutasamtakanna SSNE, Austurbrúar, SASS, SSNV, SSS, SSV og Vestfjarðarstofu. Fræðsluhádegin eru öllum opin, en þau gagnast sérlega vel frumkvöðlum og áhugafólki um nýsköpunarsenuna

Getum við bætt síðuna?