Fara í efni

Úthlutunarhátíð tilraunaverkefnis brothættra byggða II

Úthlutunarhátíð tilraunaverkefnis brothættra byggða II

Árið 2025 valdi Byggðastofnun verkefnin „Raufarhöfn og framtíðin" og „Öxarfjörður í sókn" til að taka þátt í nýju tilraunaverkefni til þriggja ára sem má líta á sem nokkurskonar framhald af verkefninu Brothættar byggðir sem byggðalögin tóku bæði þátt í fyrir nokkrum árum.
Verkefnið er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, SSNE og Norðurþings.
Auglýst var eftir styrkumsóknum í tilraunabyggðaþróunarverkefnið  í apríl 2025. Um var að ræða fyrstu úthlutun í verkefninu og voru fjármunir til ráðstöfunar 11.000.000 krónur í verkefninu Raufarhöfn og framtíðin II og 13.750.000 í verkefninu Öxarfjörður í sókn II. Frestur til að skila inn umsóknum var til 5. maí 2025 og bárust alls 18 umsóknir í heildina að upphæð 40.084.000 kr.

Það er ljóst að það er mikill hugur í fólki og mikill kraftur í samfélögunum. Það má sannarlega sjá bæði á fjölda umsókna, sem og gæðum þeirra. Þarna eru mörg spennandi verkefni sem öll hafa það að markmiði að styrkja innviðina okkar sem og samfélagið. Verkefnin sem hlutu styrki eru að vanda fjölbreytt og áhugaverð og verður spennandi að fylgjast með framgangi þeirra.
Formleg úthlutunarathöfn fór fram á Sólstöðuhátíð á Kópaskeri laugardaginn 21. júní. Næsta úthlutun fer fram á fyrri hluta árs 2026 og aftur 2027, en samningarnir eru til þriggja ára.

Eftirfarandi verkefni hlutu styrk:



Getum við bætt síðuna?