SSNE leitar að frumkvöðli til að taka þátt í Tonik 2026 í Færeyjum
SSNE leitar að frumkvöðli til að taka þátt í Tonik 2026 í Færeyjum
SSNE leitar að öflugum frumkvöðli með metnaðarfullt verkefni á Norðurlandi eystra til að taka þátt í Tonik 2026, einni helstu nýsköpunarráðstefnu Norðurlanda, sem fer fram í, Tórshöfn, 8. maí 2026 n.k.
Tonik er alþjóðlegur vettvangur sem sameinar frumkvöðla, listafólk, tæknisérfræðinga, fjárfesta og leiðtoga úr atvinnulífinu í lifandi umhverfi þar sem nýjar hugmyndir og samstarf fæðast. SSNE mun styrkja einn frumkvöðul til að taka þátt og tryggja honum sæti í pitch‑keppni hátíðarinnar, sem er einstakt tækifæri til að kynna verkefni sitt fyrir öflugum hópi fjárfesta og lykilaðila úr norræna sprotaheiminum.
Stykurinn felst í:
- 200.000 kr. styrk sem hægt er að nýta í flug og gistingu.
- Miða á Tonik hátíðina.
- Aðgöngu að pitch-viðburði, þar sem verkefnið er kynnt fyrir alþjóðlegum fjárfestum.
Keppnin veitir:
- Tækifæri til að stíga á svið og kynna hugmyndina sína
- Tengslamyndun með leiðandi fjárfestum og samstarfsaðilum
- Möguleika á verðlaunum og aukinni sýnileika í alþjóðlegu umhverfi
Til að sækja um þarf að fylla út eftirfarandi eyðublað. SSNE.is
Valnefnd getur óskað eftir ítarupplýsingum um verkefnið.
Frestur til að sækja um er 13. mars.