Fara í efni

Spurt og svarað um verkefni á sviði umhverfismála fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga

Spurt og svarað um verkefni á sviði umhverfismála fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga

Stefán Gíslason mun fjalla í stuttu máli um verkefni sveitarfélaga í umhverfis- og loftlagsmálum og síðan gefst fólki kostur á að spyrja Stefán út í hvað eina sem tengist umhverfismálum og þeim áskorunum sem sveitafélögin standa frammi fyrir í dag.

Þessi stund er hugsuð sem spjall um þessi mál frekar en nokkuð annað og hugsunin að geta rætt saman á mannamáli um annars ansi flókinn og víðfeðman málaflokk.

Stefán er umhverfisstjórnunarfræðingur að mennt og hefur haft umhverfisráðgjöf að aðalstarfi frá árinu 1998, lengst af undir merkjum ráðgjafafyrirtækisins Environice sem hann stofnaði árið 2000. Stór hluti af verkefnum Stefáns á þessum árum hefur falist í ráðgjöf við sveitarfélög og stofnanir ríkisins um stefnumótun og stjórnun umhverfismála, einkum á sviði úrgangsmála og loftslagsmála. Stefán var sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps á árunum 1985-1997 og hefur því kynnst ýmsum hliðum sveitarstjórnarmála síðustu 40 árin eða þar um bil. Stefán er búsettur á Hvanneyri og þar er líka skrifstofa Environice.

Fyrirkomulag: Kennt í rauntíma í gegnum Zoom.

Tímasetningar
:

  • Miðvikudagurinn 13. mars kl 11.00-11.45 fyrir sveitarfélög með fleiri en 1500 íbúa

  • Fimmtudagurinn 14. mars kl 11.00-11.45 fyrir sveitarfélög með færri en 1500 íbúa

Skráning er nauðsynleg og fer fram með því að smella hér.

Frekari upplýsingar varðandi LOFTUM námskeið gefa:

Kristín Björk - 460-5724 - kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - ingunn@simey.is
Hilmar Valur - 464-5100 – hilmar@hac.is

--> Loftum verkefnið er styrkt af Sóknaráætlun og hér má lesa nánar um tilurð þess.

Getum við bætt síðuna?