Fara í efni

Nýsköpun á ferð og flugi

Opinn kynningarfundur á Stéttinni Húsavík í boði Klaks, Íslandsstofu, Tækniþróunarsjóðs, Hraðsins og…
Opinn kynningarfundur á Stéttinni Húsavík í boði Klaks, Íslandsstofu, Tækniþróunarsjóðs, Hraðsins og SSNE fyrir frumkvöðla, sprota og fyrirtæki.

Nýsköpun á ferð og flugi

Fulltrúar frá KLAK – Icelandic Startups, Íslandsstofu og Tækniþróunarsjóði heimsækja Hraðið Húsavík og bjóða upp á opinn kynningarfund fyrir frumkvöðla, sprota og fyrirtæki sem eru að þróa lausnir framtíðarinnar og vilja vaxa og sækja á nýja markaði.

Öll velkomin miðvikudaginn 21. janúar kl. 16:00 í Hraðið miðstöð nýsköpunar, Stéttinni Húsavík.
Dagskráin fer fram í Frystiklefa Hraðsins, þar sem frumkvöðla- og atvinnusaga hófst fyrir tæpum 100 árum og miðstöð nýsköpunar opnaði desember 2022.


Á dagskránni verða þrjú 20 mínútna erindi:

🚀 𝐊𝐋𝐀𝐊: Stuðningsleiðir, hraðlar og tækifæri fyrir sprota á öllum stigum
 
🧭 Íslandsstofa: Aðgangur að alþjóðamörkuðum, erlendri fjármögnun og erlendum samstarfsaðilum
 
🌱 Tækniþróunarsjóður: Styrkir og ráðgjöf fyrir hugmyndir, þróunarverkefni og ný tækifæri
 
Að loknum erindum gefst tími fyrir 𝐬𝐩𝐮𝐫𝐧𝐢𝐧𝐠𝐚𝐫 𝐨𝐠 𝐬𝐚𝐦𝐭𝐚𝐥 þar sem gestir geta rætt sín verkefni, fengið ráðgjöf og tengst beint við fulltrúa allra þriggja stofnana, auk þess sem ráðgjafi á vegum SSNE verður á staðnum og býður upp á ráðgjöf.
 
 

Nánari upplýsingar:

  • Öll áhugasöm velkomin
  • Viðburðurinn fer fram í Frystiklefa Hraðsins á Stéttinni Húsavík.
  • Facebook viðburð má finna hér: https://fb.me/e/6hkDl8JGy

 

 

 

Getum við bætt síðuna?