Fara í efni
Umsóknarfrestur: kynnisheimsóknir frá Póllandi vegna menningarverkefna

Ferðastyrkir bjóðast til að koma af stað menningarverkefnum í Póllandi styrkt af uppbyggingarsjóði EES. Umsóknarfrestur er til 27. febrúar. 

Markmiðið með þessu úthlutunarkalli er að styðja við tvíhliða samstarf milli Póllands og Íslands, Noregs og Liechtenstein á sviði menningar og skapandi greina. Fjármagnið kemur úr sérstökum sjóði innan menningaráætlunarinnar sem ætlaður er verkefnum sem miða að auknu samstarfi milli landanna.

 

Hvað er hægt að sækja um?

Fjármögnunin má nýtast til að standa straum af kostnaði við fundi og vinnustofur milli menningar- og skapandi starfsaðila í:

  • Póllandi og Íslandi,
  • Póllandi og Noregi,
  • Póllandi og Liechtenstein.

Samstarfið á að leiða til þess að aðilar þrói eða viðhaldi samstarfi sem svo leiðir til verkefna sem síðar geta hlotið verkefnastyrk. Verkefnastyrkir verða auglýstir í júní.

Tímalengd og heildarfjárhæð:

  • Allar heimsóknir verða að klárast fyrir 30. september 2026.
  • Heildarfjárhæð úthlutunar er 150.000 evrur.

Upplýsingar og ráðgjöf:

Umsóknarfrestur: kynnisheimsóknir frá Póllandi vegna menningarverkefna