Fara í efni

Úthlutað 36 milljónum til sjö verkefna á sviði almenningssamgangna

Úthlutað 36 milljónum til sjö verkefna á sviði almenningssamgangna

Í ágúst auglýsti samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra eftir umsóknum um framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna, sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024 (aðgerð A.10 - Almenningssamgöngur um land allt) . Umsóknarfrestur var til 10. September sl. og hefur Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nú staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki.

Að þessu sinni er úthlutað 36 milljónum króna til sjö verkefna á sviði almenningssamgangna fyrir árin 2021-2022. Tvö verkefni á Norðurlandi eystra hljóta styrk. Markmið með framlögunum er að styðja við áframhaldandi þróun almenningssamgangna um land allt, sérstaklega út frá byggðalegum sjónarmiðum. Alls bárust níu umsóknir og var sótt um samtals kr. 76.956.293,- og heildarkostnaður verkefna var kr. 149.968.433,-.

Verkefni á Norðurlandi eystra hljóta styrk að fjárhæð 5 m.kr. Verkefnin eru:

Samfélagsleg nýsköpun. Samlegð farþega- og póstflutninga á Norðausturlandi. Umsækjandi: SSNE. Búið er að gera þarfagreiningu og eiga samræður við hagaðila. Nú þarf að vinna frekari greiningu – á hindrunum, á umhverfi og finna hagkvæmari lausnir. Fyrirmyndir verða sóttar til annarra landa meðal annars norður Noregs varðandi það kerfi sem hefur verið byggt upp með samnýtingu ýmis konar flutninga.

Styrkur kr. 3.800.000,-.

Heilsueflandi almenningssamgöngur í Langanesbyggð. Langanesbyggð í samvinnu við verkefnið Betri Bakkafjörður hlaut þróunarstyrk til að vinna þarfagreiningu og skýrari verkefnisáætlun. Ætlunin er að koma á almenningssamgöngum milli Bakkafjarðar og Þórshafnar og með því tvinna saman heildræna lýðheilsustefnu og notendamiðaðan frístunda- og tómstundaakstur. Byggð við Bakkaflóa hefur átt undir högg að sækja og verkefnið er liður í átaki gegn þeirri þróun.

Styrkur kr. 1.200.000,-.

 

Önnur verkefni er hlutu styrk:

  • Snæfellsnes – samþætting skóla- og tómstundaaksturs. Umsækjandi SSV. Gerð var fýsileikakönnun árið 2020 og nú liggja fyrir tillögur um samræmt leiðakerfi á Snæfellsnesi. Unnið verður úr þeim tillögum og sú rétta valin. Tilgangurinn er að efla samgöngur á Snæfellsnesi. Styrkur kr. 2.000.000,-.
  • Úttekt á aðgengi biðstöðva á landsbyggðinni. Umsækjandi Öryrkjabandalag Íslands. Framkvæma heildstætt mat á ástandi stoppistöðva Strætó á landsbyggðinni og SVaust og setja fram tillögur að úrbókum. Styrkur kr. 2.000.000,-
  • Loftbrúin – hvernig reynist hún? Umsækjandi Austurbrú ses. Loftbrúin hófst fyrir ári síðan. Þetta verkefni snýst um viðhorfskönnun meðal notenda þjónustunnar og meta notagildi og hlutverk út frá henni. Styrkur kr. 7.000.000,-.
  • Borgarfjörður, samþætt leiðakerfi. Umsækjandi SSV. Hefja á tilraunaverkefni sem tryggir að íbúar dreifbýlis í Borgarbyggð geti nýtt ferðir skólabíla til að sækja vinnu eða þjónustu. Styrkur kr. 12.000.000,- sem deilist á tvö ár.
  • Nýtt kerfi almenningssamgangna í Fjarðabyggð. Umsækjandi Fjarðabyggð. Nýtt leiðakerfi almenningssamgangna tók gildi 1.sept. s.l., en verkefnið er 16 mánaða tilraunaverkefni og hugsað til þess að gera Fjarðabyggð að einu atvinnu- og skólasóknarsvæði. Styrkur kr. 8.000.000,-

Í valnefndinni sitja þau Elín Gróa Karlsdóttir, Ferðamálastofu, Magnús Karel Hannesson, fv. Sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Með valnefnd störfuðu Árni Freyr Stefánsson og Gauti Daðason, sérfræðingar í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti og Sigríður K. Þorgrímsdóttir, sérfræðingur, þróunarsviði Byggðastofnunar. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024.

Aðgerð A10 í stefnumótandi byggðaáætlun:

 

 

Getum við bætt síðuna?