Fara í efni

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra - Ráðgjafar SSNE á ferð um landshlutann

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra - Ráðgjafar SSNE á ferð um landshlutann

ERT ÞÚ MEÐ HUGMYND AÐ VERKEFNI ?

SSNE verður á ferð um norðausturland dagana 4. - 7. október næstkomandi til að veita persónulega ráðgjöf og viðtöl vegna umsóknarskrifa í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra. 

Opnað verður fyrir styrkumsóknir í uppbyggingarsjóð landshlutans mánudaginn 4.október en umsóknarfresturinn verður lengri en verið hefur síðustu ár eða til kl. 13.00 miðvikudaginn 10.nóvember.

Veittir eru styrkir í eftirfarandi þremur flokkum:

  • Verkefnastyrkir á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar
  • Verkefnastyrkir á sviði menningar
  • Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar

〉〉 Í takt við sóknaráætlun landshlutans verður lögð sérstök áhersla á verkefni sem snúa að umhverfismálum 〈〈 

Starfsfólk SSNE býður upp á viðtalstíma og persónulega ráðgjöf dagana 4. - 7. október á eftirfarandi stöðum:

    • Mánudagur 4. október: Dalvík, Ólafsfjörður og Siglufjörður
    • Þriðjudagur 5. október: Grenivík, Eyjafjarðarsveit og Svalbarðseyri
    • Miðvikudagur 6. október: Húsavík, Reykjahlíð og Laugar
    • Fimmtudagur 7. október: Þórshöfn, Raufarhöfn og Kópasker

Nánari tímasetningar má finna hér, og við hvetjum áhugasama að skrá sig í ráðgjöf hér.

Allar nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóðinn má finna
hér.


Umsýsla sjóðsins er í höndum Ara Páls (aripall@ssne.is), Hildar (hildur@ssne.is) og Rebekku (rebekka@ssne.is
).

 

 

 

Getum við bætt síðuna?