Síðasti fundur fráfarandi stjórnar SSNE
Síðasti fundur fráfarandi stjórnar SSNE
Fráfarandi stjórn SSNE kom saman til síns síðasta stjórnarfundar fimmtudaginn 7. maí síðastliðinn. Fundurinn fór fram í Ráðhúsi Akureyrarbæjar þar sem stjórninni var vel tekið. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar og Sumarliði Helgason, forstöðumaður hjá Akureyrarbæ tóku á móti stjórninni og kynntu ýmis verkefni sem Akureyrarbær hefur staðið fyrir og hafa vakið athygli, meðal annars tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera og til Íslensku vefverðlaunanna.
Á fundinum voru einnig tekin fyrir ýmis mál sem snúa að starfsemi SSNE og verkefnum á starfssvæðinu, auk þess sem horft var til næstu verkefna samtakanna. Í lok fundar færði fráfarandi formaður stjórnar Lára Halldóra Eiríksdóttir bæði stjórn og starfsfólki SSNE þakkir fyrir gott samstarf og dýrmætt framlag til starfsemi SSNE á kjörtímabilinu.
Framundan er nú endurnýjun stjórnar, en nýjar sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaga SSNE munu nú skipa nýja fulltrúa í stjórn samtakanna og á þing SSNE, í samræmi við samþykktir samtakanna. Ný stjórn mun taka við störfum á næstu vikum og meðal fyrstu verkefna hennar verður undirbúningur haustþings SSNE, sem fyrirhugað er að halda á Dalvík þann 9. september næstkomandi.
Við hjá SSNE þökkum fráfarandi stjórn kærlega fyrir samstarfið á kjörtímabilinu sem er nú að ljúka bjóðum nýja stjórn velkomna til starfa.