Íbúafundur um atvinnustefnu Langanesbyggðar
Íbúafundur um atvinnustefnu Langanesbyggðar
Íbúum Langanesbyggðar er boðið á opinn rafrænan kynningarfund til að ræða drög að stefnu í atvinnumálum. Fundurinn fer fram á morgun, miðvikudaginn 28. maí kl. 16-17. Á fundinum er ætlunin að heyra hvaða sýn íbúar hafa á framtíðina og hvaða leiðir ætti að fara til þess að ná henni.
Gunnar Már Gunnarsson, starfsmaður SSNE, og Sigríður Friðný Halldórsdóttir, verkefnastjóri Kistunnar, standa að fundinum fyrir hönd Langanesbyggðar.
Að frumkvæði atvinnu- og nýsköpunarnefndar í Langanesbyggð var hafin vinna við gerð nýrrar atvinnustefnu fyrir sveitarfélagið. Ýmis stefnumótandi vinna hefur því farið fram undanfarin misseri og má þar t.a.m. nefna Fyrirtækjaþingið í Langanesbyggð og Auknar fjárfestingar, vinnustofa sem haldin var með sveitarstjórn um hugsanleg fjárfestingartækifæri innan sveitarfélagsins. Báðir viðburðir haldnir með aðkomu og í samstarfi við SSNE. Þá hefur verið haft samráð við ýmsa hagaðila og önnur upplýsingaöflun farið fram á tímabilinu.
Íbúar eru hvattir til að fjölmenna á þennan fund því allar raddir eru mikilvægar í mótun atvinnustefnu til framtíðar. Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Langanesbyggðar.