Fara í efni

Hagsmunagæsluhlutverk SSNE

Hagsmunagæsluhlutverk SSNE

SSNE gegnir mikilvægu hlutverki í hagsmunagæslu fyrir sveitarfélög, atvinnulíf og íbúa á starfssvæðinu. Í því felst m.a. að fylgjast með stefnumótun stjórnvalda, greina áhrif á svæðið og koma sjónarmiðum landshlutans á framfæri.

Á síðasta stjórnarfundi SSNE voru til að mynda samþykktar umsagnir um fimm mál á Alþingi Íslendingasem varða framtíð sveitarfélaga og byggða. Í umsögunum var lögð áhersla á hagsmuni Norðurlands eystra, á jafnræði landshluta, sjálfbæra þróun og sterkar stoðir atvinnulífs og þjónustu á landsbyggðinni. Með slíkri þátttöku leggur SSNE sitt að mörkum til að rödd Norðurlands eystra heyrist við mótun opinberrar stefnu og ákvarðanatöku á landsvísu.

Hagsmunagæsla er einn af hornsteinum starfs SSNE og liður í því að skapa sveitarfélögum á svæðinu betri skilyrði til að sinna lögbundnum verkefnum sínum og stuðlar sömuleiðis að farsælli byggða- og atvinnuþróun til framtíðar.

Getum við bætt síðuna?