Fara í efni

Frumkvæðissjóður Betri Bakkafjarðar opnar fyrir umsóknir 2. janúar

Frumkvæðissjóður Betri Bakkafjarðar opnar fyrir umsóknir 2. janúar

Umsóknarfrestur er til kl. 12:00 á hádegi þriðjudaginn 23. janúar 2024.

Meginmarkmið verkefnisins Betri Bakkafjörður eru eftirfarandi:

  • Sterkir samfélagsinnviðir
  • Öflugt atvinnulíf
  • Aðlaðandi ímynd Bakkafjarðar
  • Skapandi mannlíf

Væntanlegar umsóknir þurfa að taka mið af þessum markmiðum. Á vef Byggðastofnunar eru nánari reglur um styrkveitingar. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar má nálgast á síðunni Betri Bakkafjörður á vef SSNE (Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra). Athugið að ekki er krafist mótframlags frá umsækjanda. Það styrkir umsókn ef verkefnið laðar fram fjármuni og krafta aðstandenda verkefnisins og samstarfsaðila. Samstarf aðila sem að jafnaði starfa ekki saman styrkir umsóknina.

Umsækjendur er hvattir til að lesa ofangreindar leiðbeiningar og leita sér aðstoðar hjá verkefnisstjóra. Vönduð umsókn sem styður við framtíðarsýn og meginmarkmið verkefnisins er líklegri til árangurs.

Nánari upplýsingar og ráðgjöf veitir Romi Schmitz verkefnisstjóri, sími 845-8782 / romi@ssne.is

Getum við bætt síðuna?