Hugsað, hannað, smakkað
Hugsað, hannað, smakkað
HönnunarÞing/DesignThing er uppskeruhátíð skapandi greina þar sem hönnun og nýsköpun mætast á nýstárlegan hátt. Dagana 26. - 27. september verður viðburðurinn haldinn í þriðja sinn, við höfnina á Húsavík. Dagskrá hátíðarinnar er ofin úr þremur þráðum: Hönnun – Nýsköpun – Eitthvað nýtt. Rauðu þræðirnir eru sem sagt nýsköpun og hönnun, en svo er þriðji þráðurinn ávallt eitthvað nýtt.
Í haust verður þriðji þráðurinn matur!
,,Við erum afar spennt að sameina fjölbreytta sýn hönnuða, frumkvöðla og matreiðslufólks og bjóða gestum að kanna hvernig form, bragð og framtíðarsýn blandast saman í einstaka upplifun” segir Stefán Pétur Sólveigarson verkefnastjóri Hraðsins á Húsavík, en hann er forsprakki HönnunarÞings.
Að mörgu er að hyggja í skipulagningu fjölbreyttrar dagskrár líkt og HönnunarÞings og undirbúningur á Stéttinni í fullum gangi þessa dagana. Á dagskránni verða erindi frá frumkvöðlum og hönnuðum, sýningar, uppákomur, matur, nýsköpun, matartækninýjungar og margt fleira. Tillögur að viðburðum eða erindum má senda á stefan@hac.is, ,,Við fögnum hugmyndum sem vekja skilningarvitin, örva sköpunargleðina og bjóða upp á nýjar leiðir til að sjá og skynja heiminn.”
Í fyrra var þriðji þráðurinn tónlist og má hér finna innlit í hátíðina:
Verið velkomin í innblástur, nýsköpun og sköpunargleði með okkur!
📅 26. og 27. september 2025
🕒 Hátíðin hefst kl. 10:00 á föstudegi og lýkur með tónleikum í Sjóböðunum kl. 23:00 á laugardegi
📍 Stéttin, Húsavík
💰 Enginn aðgangseyrir en hugmyndaskipti eru magnaður gjaldeyrir
Smelltu hér til að fá viðburðinn í dagatalið þitt
Að hátíðinni stendur Hraðið miðstöð nýsköpunar á Húsavík með vöruhönnuðinn Stefán Pétur Sólveigarson í fararbroddi. SSNE er samstarfsaðili og fagnar framtakinu og leggur sitt af mörkum til að vekja athygli á atvinnulífi á sviði nýsköpunar og skapandi greina. Með viðburðinum er meðal annars leitast við að opna augu fólks fyrir möguleikum þess að vinna að hönnun og öðrum skapandi greinum um allt land.