Fara í efni

Samráðsvettvangur Sóknaráætlunar

Samráðsvettvangur Sóknaráætlunar

Síðari fundur ársins í samráðsvettvangi Sóknaráætlunar Norðurlands eystra verður haldin þriðjudaginn 16. desember kl. 13.00 í fjarfundi.

Þátttakendur í samráðsvettvangi Sóknaráætlunar Norðurlands eystra hafa góðan aðgang að upplýsingum um framgang Sóknaráætlunar landshlutans. Með samráðsvettvanginum er stuðlað að því að ólíkar raddir frá ólíkum hópum og svæðum landshlutans hafi áhrif á Sóknaráætlunina sem SSNE starfar eftir.

Það er mikilvægt fyrir landshlutann í heild að í samráðsvettvangnum sitji sem breiðastur hópur, fólk á öllum aldri og af ólíkum kynjum sem hafa reynslu af ólíkum sviðum mannlífsins. Samráðsvettvangurinn samanstendur af fólki úr atvinnulífinu, fræðasamfélaginu, fólki sem hefur tengsl við félagasamtök, starfsmönnum og fulltrúum opinberra stofnana, kjörnum fulltrúum og ungmennum. Öll geta óskað eftir sæti í samráðsvettvangnum og er einfalt að skrá sig hér.

Getum við bætt síðuna?