Góð heimsókn GeoSilica til SSNE
Góð heimsókn GeoSilica til SSNE
Nýsköpunarfyrirtækið GeoSilica hefur samið við Landsvirkjun um leigu á nýju húsi á fjölnýtingarlóð Landsvirkjunnar á Þeistareykjum, sem og afhendingu auðlindastrauma og samstarf fyrirtækjanna til næstu ára. GeoSilica mun nota kísil úr jarðhitavökva frá Þeistareykjastöð til framleiðslu á vörum sínum, en kísill úr jarðhitavökva nýtist í ýmsar verðmætar vörur, s.s. fæðubótaefni og jarðvegsbæti með litlu kolefnisspori. Starfsemi fyrirtækisins styður við bætta nýtingu auðlindastrauma og aukna sjálfbærni, þar sem um er að ræða innlenda framleiðslu á mikilvægu steinefni, sem unnið er á hreinan hátt.
Samningur Landsvirkjunar við GeoSilica markaði upphaf fjölnýtingar á Þeistareykjum, þar sem vonir standa til þess að fjölbreytt starfsemi byggist upp með ávinningi fyrir nærsamfélagið. Starfsfólk SSNE þakkar GeoSilica fyrir upplýsandi og jákvætt samtal og hlakkar til að fylgjast með þróuninni á Þeistareykjum.