127 umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra
127 umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra
Umsóknarfrestur fyrir Uppbyggingarsjóð rann út 22. október s.l., en alls bárust 127 umsóknir í sjóðinn. Þar af voru 76 umsóknir um menningar- og samfélagsverkefni, 36 atvinnu- og nýsköpunarverkefni og 15 stofn- og rekstrarstyrkja menningarstofnanna.
Árið 2025 bárust 147 umsóknir í Uppbyggingarsjóð og sótt var um fyrir 267 miljónir, samanborið við 290 miljónir að þessu sinni. Ráðgert er að úthluta um 74 miljónum vegna verkefna 2026.
Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja við verkefni sem falla að Sóknaráætlun Norðurlands eystra í þremur flokkum, atvinnulífs, blómlegra byggða og stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar.
Úthlutunarnefnd mun nú fara yfir umsóknir og leggja mat á þau verkefni sem bárust. Þá er gert ráð fyrir því að haldin verði rafræn úthlutunarhátíð þann 10. desember n.k.