Nýsköpun
Nýsköpun er málaflokkur sem þarf sífellt að vera að hlúa að og er það eitt af lykilverkefnum SSNE.
Í Sóknaráætlun Norðurlands eystra er markmiðið að í landshlutanum verði fjölbreytt og framsækið atvinnulíf með áherslu á nýsköpun.
Frumkvöðlar þurfa mismunandi stuðning eftir hvar þeir eru staddir í nýsköpunarferðalaginu sínu. SSNE hefur í samstarfi við fjölmarga aðila kortlagt Nýsköpunarferðalag Norðurlands. Nýsköpunarferðalag Norðurlands er ætlað að vera leiðarvísir frumkvöðla frá hugmyndastigi til fjármögnunar. Reglulegir viðburðir eru t.d. Norðansprotinn, sem er leitin að bestu nýsköpunarhugmynd Norðurlands, Startup-Landið sem er viðskiptahraðall í samstarfi allar landshlutasamtakanna.

Starfsfólk SSNE veitir ráðgjöf fyrir frumkvöðla, hægt er að hafa samband tengiliði nýsköpunar eða senda tölvupóst á ssne@ssne.is.
Verkefni SSNE í nýsköpun:
Norðansprotinn
Norðansprotinn er nýsköpunarkeppni þar sem leitað er að áhugaverðustu nýsköpunarhugmyndum Norðurlands. Norðansprotinn er hluti af nýsköpunarferðalagi Norðurlands sem er ætlað að vera leiðarvísir frumkvöðla frá hugmyndarstigi að fjárfestingu. Norðansprotinn er samstarfsverkefni SSNE, SSNV, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum, Drift EA, Eims og Hraðsins með veglegum stuðningi frá Landvættir fjárfestingarsjóði í rekstri Axum verðbréfa. Leitin að næsta Norðanspotanum hefst
Forvitnir frumkvöðlar
Forvitnir frumkvöðlar er heiti fyrirlestraraðar á vegum landshlutasamtakanna á Íslandi: Austurbrúar, SASS, SSNE, SSNV, SSS, SSV og Vestfjarðarstofu.
Í Forvitnir frumkvöðlar, er meðal annars farið yfir styrkumsóknarskrif, gerð viðskiptaáætlana og skapandi skrif. Látið ekki þessa fræðslu framhjá ykkur fara.
Næsta fyrirlestraröð hefst í janúar 2026
Startup Landið

Startup Landið er sjö vikna viðskiptahraðall landshlutanna sem ætlaður er frumkvöðlum og nýsköpunarverkefnum á landsbyggðunum.
Startup Landið veitir þátttakendum aðgang að sérfræðiráðgjöf, tengslaneti og möguleikum á fjármögnun. Markmiðið er að styðja við vöxt og þróun nýsköpunarverkefna sem eru komin af hugmyndastigi, hvort sem þau eru unnin af einstaklingum, sprotafyrirtækjum eða innan rótgróinna fyrirtækja.
Startup Landið verður aftur haldið haust 2026.
Stuðningur við umsóknarskrif
Nýsköpun er lykillinn að því að byggja upp landsbyggðirnar með fjölbreytni og sjálfbærni að leiðarljósi. Nýtum tækifærin á svæðunum og þeim til heilla.
Hjá SSNE er hægt að nálgast upplýsingar um ýmsa styrki sem í boði eru, bæði hér á landi sem og erlendis. Þá býður SSNE upp á fría ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja vegna styrkumsóknarskrifa en nú bætum við um betur og bjóðum upp á styrki til að sækja sérhæfða ráðgjöf eða námskeið í styrkumsóknarskrifum. Markmiðið er annars vegar að fjölga umsóknum af svæðinu og hins vegar að hækka árangurshlutfall umsókna af svæðinu.
Fyrir hverja? Aðila sem vinna að verkefnum eða sprotafyrirtækjum með þróun í huga sem vantar fjármagn til að kaupa sér sérhæfða ráðgjöf eða námskeið við umsóknaskrif.
Í hvað? Til kaupa á sérhæfðum námskeiðum í umsóknarskrifum eða í vinnu sérfræðinga í styrkjaumsóknum í flóknari umsóknarferlum svo sem í tækniþróunarsjóð.
Hvernig sæki ég um? Fyllir út umsókn á vef SSNE þar sem taka þarf fram um hvað verkefnið snýst og í hvaða sjóð á að sækja um í. SSNE mun kalla eftir upplýsingum varðandi framgang verkefnis, hvort það hlaut styrk og gagnsemi aðstoðar.
Smelltu hér til að komast í umsóknarsíðu.
Hvenær get ég sótt um? Hægt er að senda inn umsóknir allt árið um kring og en umsóknir eru metnar á föstudögum í hverri viku.
Hverjir teljast sérfræðingar í styrkjaumsóknum? Sérfræðingur þarf að hafa reynslu af að sækja í sjóði og geta sýnt fram á árangur í þeim efnum. Starfsfólk SSNE setur það alfarið í hendur umsækjenda að finna aðstoð en getur aðstoðað ef það vantar upplýsingar um námskeið eða sérfræðinga. Starfsmenn leggja mat á hvaða námskeið óskað er eftir að sækja og þá sérfræðiráðgjöf sem óskað er eftir að sækja.