Fara í efni

Fundargerð - stjórn SSNE - 35. fundur - 9. febrúar 2022

09.02.2022

Fundur haldinn miðvikudaginn 9. febrúar 2022 í fjarfundi og hófst fundurinn kl. 13:00. Fundi slitið kl. 15:20

Fundinn sátu: Hilda Jana Gísladóttir, formaður, Sigurður Þór Guðmundsson, Þröstur Friðfinnsson, Aldey Unnar Traustadóttir fyrir Kristján Þór Magnússon, Eva Hrund Einarsdóttir, Jón Stefánsson, Helga Helgadóttir og Eyþór Björnsson sem ritaði fundargerð.

Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1. Áætlun um endurskoðun svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi

Stefán Gíslason kynnti verkefnisáætlun og svaraði spurningum stjórnar.

Stjórn SSNE þakkar Stefáni Gíslasyni fyrir góða kynningu og felur framkvæmdastjóra að fylgja eftir umræðum á fundinum í samráði við framkvæmdastjóra SSNV og Environice.

2. Fjárfestamót á Norðurlandi

Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir greindi frá fjárfestamót á Siglufirði 1. mars, útfærslu þess og skipulagi.

Stjórn SSNE þakkar Sesselju Ingibjörgu Barðdal Reynisdóttur, framkvæmdastjóra Eims fyrir kynninguna á þessu spennandi verkefni.

3. Flugklasinn

Rætt um fjármögnun Flugklasans og hlutverk hans.

Framkvæmdastjóra falið að ræða við SSNV, Markaðsstofuna og Flugklasann og áætlað er að málið verði tekið fyrir á næsta ársþingi SSNE.

4. Greið leið

Framkvæmdastjóri kynnti stöðu mála í endurfjármögnun Vaðlaheiðarganga.

5. Málaflokkur fatlaðra

Rætt var um fjármagn ríkis til málaflokks fatlaðra hjá sveitarfélögum.

Stjórn SSNE telur brýnt að fjármögnun málaflokksins verði endurskoðuð og fjármagn tryggt af hálfu ríkisins.

6. Forkaupsréttur Þekkingarvörður

Borist hefur erindi frá Þekkingarverði ehf. þar sem óskað er staðfestingar á því hvort hluthafar hyggist nýta forkaupsrétt vegna sölu á eignarhlut KEA til Háskólans á Akureyri.

SSNE fellur frá forkaupsrétti á eignarhlut KEA í Þekkingarverði ehf.

7. Efni til kynningar.

a) Bréf formanns og framkvæmdastjóra SSNE til umhverfisráðherra

b) Nauðsynleg viðbrögð sv.fél. vegna breytinga á barnaverndarlögum - tölvupóstur

c) Umdæmisráð barnaverndar minnisblað

d) Fundargerð 577. fundar stjórnar SASS

e) Fundargerð 72. fundar stjórnar SSNV

f) Fundargerð 73. fundar stjórnar SSNV

g) Fundargerð 905. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

h) Skýrsla innviðaráðherra um framvindu stefnumótandi byggðaáætlunar

i) Bréf SSNE til starfshóps um áskoranir Íslands í orkumálum

j) Tölvupóstur SSNE til starfshóps um áskoranir Íslands í orkumálum

 

8. Frá nefndasviði og samráðsgátt

a) Áform um lagasetningu - verndar- og orkunýtingaráætlun

b) Áform um lagasetningu - niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar

c) Áform um lagasetningu - úrgangur í náttúrunni 2022

Getum við bætt síðuna?