Fara í efni
Umsóknarfrestur: Tækniþróunarsjóður - Fræ/Þróunarfræ

Fyrir hverja?
Fyrirtæki yngri en 5 ára og einstaklinga.

Til hvers?

Fræ og Þróunarfræ hafa það að markmiði að styðja við hugmyndir og verkefni á frumstigi sem getur leitt af sér stærra þróunarverkefni.

Umsóknarfrestur: Alltaf er opið fyrir umsóknir. Umsóknir sem berast fyrir 15. febrúar nk. munu fara fyrir fagráð sjóðsins í næsta matsferli.

Allar umsóknir sem berast eru teknar fyrir og úthlutun tilkynnt að lágmarki tvisvar á ári.

Fræ er undirbúningsstyrkur til ungra frumkvöðlafyrirtækja eða einstaklinga og er sniðinn að verkefnum á hugmyndastigi eða á frumstigi í þróun afurðar.
Þróunarfræ er forkönnunarstyrkur til ungra frumkvöðlafyrirtækja og einstaklinga til að ráðast í þróunarsamvinnuverkefni.

Sjá nánari lýsingu á markmiðum Fræ og Þróunarfræ í reglum sjóðsins.

Hámarksstyrkur: 2.000 þ.kr.
Mótframlag: Ekki er gerð mótframlagskrafa í þessum styrkjaflokki.
Hámarks lengd verkefnis: Skil á niðurstöðum verkefna þurfa að liggja fyrir innan 12 mánaða frá umsóknardegi.

Skil á umsókn: Alltaf er opið fyrir umsóknir. Umsóknir sem berast eru teknar fyrir og úthlutun tilkynnt að lágmarki tvisvar á ári. Umsókn skal skila rafrænt í umsóknarkerfi Rannís.

Matsferli: : Umsóknir eru metnar af fagráði Tækniþróunarsjóðs. Fagráðið er þverfaglegt og skipað einstaklingum frá fyrirtækjum, háskólum og stofnunum.
Í þessum flokki fá umsækjendur ekki einkunn eða umsögn um verkefnið. Umsækjendur fá tilkynningu um hvort stjórn hafi ákveðið að styrkja verkefnið eða ekki.

Skýrsluskil: Skila þarf inn lokaskýrslu eigi síðar en 12 mánuðum frá upphaflegum umsóknarfresti.

Minniháttaaðstoð (De minimis): Þessi styrkjaflokkur fellur undir reglur um minniháttar aðstoð. Nánari upplýsingar um minniháttar aðstoð má sjá í reglum Tækniþróunarsjóðs.

Sjá nánar: Reglur Tækniþróunarsjóðs - FrÆ/þróunarfrÆ

Umsóknarfrestur: Tækniþróunarsjóður - Fræ/Þróunarfræ