Sjóvá tekur virkan þátt í samfélaginu og leggur sitt af mörkum til verkefna sem hafa jákvæð og varanleg áhrif. Áhersla er lögð á verkefni sem tengjast forvörnum, heilsu og hreyfingu, sem og þátttöku almennings í samfélagsverkefnum.
Úthlutunarreglur
Úthlutað er að hámarki 12 milljónum króna árlega, sem fer fram í þremur úthlutunum. Einstakir styrkir eru að jafnaði á bilinu 100.000 til 500.000 krónur, og fara aldrei yfir eina milljón króna.
Styrkveitingar miða að því að styðja verkefni sem hafa breiða samfélagslega skírskotun, með sérstakri áherslu á verkefni sem hafa jákvæð áhrif í nærsamfélagi Sjóvár.
Styrkir eru veittir einstaklingum, hópum, sjálfseignarstofnunum og frjálsum félagasamtökum sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Stuðningurinn er veittur til afmarkaðra verkefna og viðburða, en nær ekki til rekstrarkostnaðar.
Hver eru verkefnin sem henta fyrir styrk?
Áhersla er lögð á verkefni sem tengjast:
- forvörnum og æskulýðsstarfi
- heilsu og hreyfingu
- listum, menningu og menntun
- sjálfbærni og samfélagsábyrgð
Hvað fellur almennt utan styrkramma?
Ekki er veittur stuðningur í tengslum við:
- námsstyrki
- ferðir erlendis
- almenna útgáfu, s.s. bóka, hljómplatna eða kvikmynda
- rannsóknir- og vísindaverkefni