Fara í efni
Umsóknarfrestur: Nýsköpunarsjóður námsmanna

Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi og námi á meistarastigi við háskóla til sumarvinnu að rannsókna- og þróunarverkefnum. Umsóknarfrestur er til 6. febrúar 2024 kl. 15:00.

Af hverju?

  • Styrkir eru veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja.
  • Umsóknir um styrki er m.a. metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein.
  • Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn umsjónarmanns frá háskóla, stofnun eða fyrirtæki.

Fyrir hverja?

  • Háskólanemar í grunn og meistaranámi.
  • Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska eftir að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknar- og/eða þróunarverkefni.

Styrkir eru veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja. Umsóknir um styrki er m.a. metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein. Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn umsjónarmanns frá háskóla, stofnun eða fyrirtæki.

Nánari upplýsingar, reglur og leiðbeiningar er að finna á síðu Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á nsn(hja)rannis.is

Umsóknarfrestur: Nýsköpunarsjóður námsmanna